Ég vil bara aðeins koma á framfæri með nýja kubbinn að ég setti hann upp til að taka fréttir af síðum liðanna og búa sjálfur til fréttir (það kemur að því). ;)

Það eru ekki allir sem skoða síður liðanna og þess vegna er gott að hafa þennan kubb og líka til að fylgjast með íslenska hokkíinu.

Ég veiti fólki sem veit eitthvað um íslenska hokkíið aðgang að honum og ef það tekur af öðrum síðum þá er <B> SKYLDA </B> að geta til heimilda og vefstjórar eða umsjónarmenn <a href="http://www.icehockey.is/"> icehockey.is </a> hafa gefið leyfi til að taka fréttir af þeirri síðu og setja hér inn.

Ef það verða einhver leiðindi útaf þessum kubb þá eyði ég honum. Svo einfalt er það og ef einhver er á móti þessum kubb þá endilega segðu mér af hverju þér er svona illa við hann.

Ég vona bara að þessi kubbur verði ekki til vandræða því persónulega þá kíki ég ekki daglega á heimasíður liðanna heldur kíki ég daglega á hugi.is/hokki og mér finnst gott að geta lesið um leiki og annað sem er að gerast í íslenskahokkíinu hér á HugaHokkí.<br><br>——-
the MutaNt hockey player - You play you pay you bastard!
x ice.MutaNt