Sergei Fedorov <b>Sergei Fedorov 91</b>
<ul>
<li> Miðherji (Center)</li>
<li> Vinstri skothönd</li>
<li> Fæddur í Rússlandi, 13 Desember 1969</li>
<li> Detroit Red Wings</li>
</ul>

Mjög hæfileikaríkur miðherji, Fedorov sameinar frábæra skautahæfileika og góða kylfu-meðhöndlun með hvassri eðlishvöt sinni. Hann er sterkur í vörninni og alltaf mikil ógnun sóknarlega séð, sem gerir hann mjög mikilvægan fyrir liðið sitt.

Detroit Red Wings völdu hann árið 1989, þegar hann var 20 ára gamall. Hann vann “Hart Trophy” og “Person Award” leiktíðina 1993-94. Vann “Selke Trophy” 1993-94 og 1995-96. Hefur spilað í 3 NHL All-Star leikjum. Vann Stanley Cup með Detroit Red Wings árið 1997 og 1998. Leiddi Detroit með 20 stig í úrslitakeppninni 1998. Og vann silfur-verðlaun með Rússneska landsliðinu á Ólympíuleikunum 1998.

Hann hefur verið að spila nokkuð vel í þessari úrslitakeppni, og er með 14 stig. Sem er 4. besti árangurinn í Detroit en 9. á topplistanum.

Vonandi á hann eftir að láta margt gott af sér leiða í úrslitaleikjunum sem eru að fara að byrja, því hann er mjög skemmtilegur leikmaður og gaman að fylgjast með honum spila.