Red Wings elta Roy, vinna 7-0 Tomas Holstrom skoraði tvö fyrstu leikhlutarmörkin föstudagskvöld og Dominik Hasek setti Stanley Cup-úrslitarmet með hans fimmta “shutout” í 2002 úrslitaleiktíðinni er Detroit Red Wings útrýmdu Stanley Cup meisturunum í fyrra með útkomunni 7-0 í leik 7 af Vesturdeildar úrslitunum.

Red Wings unnu sína þriðju Clarence S. Campbell skál, tákn Vesturdeildar-meistaranna, í sex ár. Þeir unnu Stanley bikarinn 1997 & 1998.

“Í kvöld var eitt þeirra kvölda er við gátum ekki gert neitt vitlaust.” Sagði Detroit varnarmaðurinn Chris Chelios.

Red Wings munu spila leik 1. í Stanley Cup úrslitunum heima í Detroit í Joe Louis Arena á þriðjudaginn á móti Carolina Hurricanes.

Red Wings munu sækja eftir tíunda Stanley Cup á meðan Carolina Hurricanes eru að spila í fyrsta skipti í Stanley Cup úrslitunum.

Red Wings skoruðu fjórum sinnum í fyrsta leikhluta og tvisvar í öðrum leikhluta til að senda Colorado's Patrick Roy á bekkinn. David Aebischer kom í staðinn fyrir Roy þegar 13:32 voru eftir af öðrum leikhluta.

“Að fá þessi mörk snemma í fyrsta leikhluta, þú gætir ekki beðið um betri byrjun.” Sagði fyrirliði Detroit, Steve Yzerman.

Roy gerði 10 markvörslur en Aebischer gerði 13 markvörslur.

Sergei Federov og Luc Robitaille skoruðu líka fyrstu leikhlutarmörk og Brett Hull og Fredrik Olausson skoruðu í seinni leikhluta á móti Roy.

Hasek gerði 19 markvörslur og hans “shutout” var varðveitt þegar Chris Drury's þriðja leikhlutarmark var dæmt sem sparkað-í-markið mark sem er óleyfilegt. Red Wings hindruðu líka 15 skot í vörninni.

“Það var frábært að sjá liðsfélaga mína skora þessi snemma-mörk.” Sagði Hasek. “Það var frábært að sjá þá skora fjögur mörk í fyrsta leikhluta.”

Á meðan Roy var augljóslega ekki að gera sitt besta í öðrum leik sínum í röð, fyrstu mörkin voru skoruð af mjög erfiðum hliðarbeygjum (deflection), þriðja markið af lélegum varnarástæðum og það fjórða af endurkasti óvarins varnarmanns. Brett Hull var óvarinn þegar Boyd Devereaux sigraði tvo varnarmenn til að senda á hann og Olausson, annar varnarmaður var óvarinn á marki hans.

Colorado voru augljóslega slakir eftir að spila 105 leiki seinasta ár í leið sinni í að vinna Stanley bikarinn en 103 leiki þetta ár.

Avalanche voru að spila í sínum þriðja leik í röð eftir að hafa lengt takmark þeirra af Los Angeles Kings í fyrsta hluta og af San Jose Sharks í Undanúrslitum Vesturdeildarinnar.

Þeir voru fyrsta liðið til að spila þrjá leik 7. í eitt ár síðan 1993 af Toronto Maple Leafs sem töpuðu Vesturdeildar úrslitinum á móti Los Angeles Kings.

Mike Keane og Alex Tanguay snéru aftur úr meiðslum fyrir Colorado en Dan Hinote og Stephane Yelle voru aftur frá. Fámenni bekkur Colorados sködduðu toppleikmenn Colorados sem voru greinilega ekki í stuði seinustu tvo leiki.

“Þetta var frábær sería af áhorfendastæðinu” Sagði þjálfari Red Wings Scotty Bowman sem kom fram í sínum níunda leik 7. og jafnaði Mike Keenan í þjálfurum sem hafa verið í flestum leik 7.
“(Leikmenn Colorado's eru) sannir meistarar, Ég sagði þeim það á ísnum. Það er nokkuð erfitt að keppa þegar maður er illa farinn. Það hefur hent mig.”

“Það er aldrei auðvelt að tapa leik 7. í deildarúrslitunum” Viðurkenndi þjálfari Colorados's Bob Hartley “Þessir gaurar áttu skilið mjög mikið hrós. … Við sáum að dýpt Red Wings var mjög góð og þeir komu mjög sterkir til leiks.”
x ice.MutaNt