St. Louis Blues koma sterkir inn á heimavelli Þjálfari St. Louis Blues, Joel Quenneville hristi aðeins upp í línunum sínum til að búa til smá sókn. Keith Tkachuk skráði sitt fyrsta úrslita hat-trick og sameinaði 8 stig með liðsfélögum sínum Pavol Demitra og Scott Mellanby er Blues rústuði Dominik Hasek og Detroit Red Wings 6 - 1 í leik þrú af best-af-sjö seríunni.

Eftir að hafa tapað fyrstu tveim leikjunum í Detroit þá komu St. Louis Blues sterkir inn á heimavelli. Þeir fengu fyrstu tvö powerplay mörkin sín í seríunni á móti Detroit og hreinlega áttu leikinn og eltu Hasek uppi í miðjum 3 leikhluta og skoruðu hjá honum til að gera stöðuna í seríunni 2 - 1.

Keith Tkachuk skoraði mark í hverjum leikhluta á meðan Pavol Demitra náði sér í mark þegar þeir voru einum manni færri og 2 stoðsendingar. Scott Mellanby bætti við marki og einni stoðsendingu.

Brent Johnson var með 27 markvörslur en náði að stoppa þau 20 skot sem komu í 2. og 3. leikhluta en Detroit skoraði í fyrsta leikhluta.

Hasek gaf 5 mörk af 16 skotum og var sendur útaf fyrir Manny Legace er hann kom fyrst fram í úrslitunum þegar það voru 10:34 eftir í 3. leikhluta.

Staðan er svona:
Austur-Deildin
————————-
Carolina 1 - 2 Montreal
Toronto 1 - 2 Ottawa

Vestur-Deildin
————————-
De troit 2 - 1 St. Louis
Colorado 1 - 2 San Jose
x ice.MutaNt