Todd Bertuzzy Nokkrir punktar um Todd Bertuzzi:

Nafn: Todd Bertuzzi
Staða: Hægri vængur
Lið: Vancouver Canucks
Númer: 44
Hæð: 6-3
Þyngd: u.m.þ.b. 123 kg
Fæðingardagur/ár: 2 febrúar, 1975
Fæðingarstaður: Sudbury, Ontario

Todd Bertuzzi fór árið 1993 fyrst í NHL lið, New York Islanders. 7 október 1995 náði hann sínum fyrsta árangri í leik gegn Boston Bruins, var með mark og stoðsendingu. Hann lék 76 leiki í byrjandaleiktíðinni og var með 39 stig, 18 mörk og 21 stoðsendingu.

1996-1997 var hann með 23 stig í 64 leikjum.

1997-1998, 6 febrúar var Bertuzzi skipt ásamt samherja sínum, Bryan McCabe yfir til Vancouver Canucks fyrir Trevor Linden. Í 74 leikjum á milli beggja liðanna var hann með 33 stig.

1998-1999 lék Todd aðeins 32 leiki og var bara með 16 stig og 53 skot. Hann missti af mestri leiktíðinni vegna fótbrots.

1999-2000 var Todd með 50 stig, 25 mörk og 25 stoðsendingar í 80 leikjum. Hann var með 187 skot og vann “Mest Spennandi Leikmaður” liðsins verðlaunin.

2000-2001 var Todd annar í stigum með 25 mörk og voru 14 af mörkunum power-play mörk. Þeir komust í úrslit í fyrsta skipti í 5 ár. Hann náði 55 stigum og 132 skotum í 79 leikjum.

2001-2002 skoraði Todd 36 mörk og var í þriðja sæti í markahæstu menn deildarinnar (á eftir Markus Naslund og Jarome Iginla). Hann var með 85 stig í endanum á leiktíðinni.

Þessi leikmaður er kannski ekki eins góður og margir aðrir en á samt skilið að vera hérna :D
Hvað finnst ykkur um hann?(ef þið hafið heyrt um hann)