NY Islanders rústa Lightning, 7-2 NY Islanders - 7

Tampa Bay Lightning - 2

21 Nóvember, 2002.

Mark Parrish og Jason Blake skoruðu báðir tvö mörk í leiknum er NY Islanders rústuð Tampa Bay Lightning gjörsamlega 7-2.

Tampa Bay náði samt að skora fyrsta markið í leiknum er Ben Clymer skaut milli lappanna hja Garth Snow, markmanni Islanders.

Jason Blake jafnaði svo leikinn og Mark Parrish gerði stöðuna 2-1 eftir 1. leikhluta.

En í 2. leikhluta skoruðu Islanders 4 mörk í röð og voru það Mark Parrish, Dave Scatchard, Mattias Timander og Jason Wiemer sem skoruðu fyrir Islanders og eftir þetta vissu allir að Lightning væru búnir að tapa og allavega þegar Islanders bættu við 7 markinu í 3. leikhluta til að gulltryggja sigurinn.

Andre Roy náði samt að skora eitt mark í viðbót fyrir Lightning en það dugði ekki.

Tampa Bay Lightning féllu niður um eitt sæti en er núna í 3. sæti með 25 stig á meðan Islanders eru í 13 sæti með 16 stig.

Það voru 8 aðrir leikir í gærnótt (20 nóv.) og fóru þeir svona:

- NY Rangers og New Jersey gerðu 4-4 jafntefli.
- San Jose og Philadelphia gerðu 2-2 jafntefli.
- St. Louis vann Los Angeles, 3-2.
- Minnesota vann Washington, 4-3.
- Ottawa vann Montreal, 3-2.
- Boston vann Carolina, 3-1.
- Edmonton vann Calgary, 3-1.
- Og svo gerðu Nasville og Colorado 1-1 jafntefli.
x ice.MutaNt