Penguins tapa í Overtime Pittsburgh Penguins - 3

Florida Panthers - 4

Pittsburgh Penguins byrjuðu á því að skora í 1. leikhluta er Dick Tarnstrom fékk sendingu frá Mario Lemieux hjá bláu línunni og skaut úlniðarskoti fram hjá Roberto Luongo, markmanni Panthers.

En Florida svöruðu fyrir sig seinna í leikhlutanum er Viktor Kozlov jafnaði leikinn og staðan eftir einn leikhluta var 1-1.

Penguins komust svo aftur yfir í 2. leikhluta er Alexander Daigle skoraði f. Penguins en Florida náði að skora 2 mörk í sama leikhluta og voru þar Olli Jokinen og Kristian Huselius að verki þannig að Florida var með forystuna þegar 3. leikhluti byrjaði.

“Super” Mario jafnaði svo leikinn í 3. leikhluta og sendi leikinn í framlengingu. En í framlengingunni voru Panthers sterkari en Penguins fengu á sig brot og Panthers voru með pökkinn. Huselius var með hann og sendi hann þvert yfir ísinn til Valeri Bure sem skaut úlniðarskoti fram hjá Joan Hedberg, markmanni Penguins.

3 stjörnur kvöldsins:

- Valeri Bure (FLA), skoraði sigurmarkið í leiknum.
- Olli Jokinen (FLA), var með mark og 2 stoðsendingar í leiknum.
- Mario Lemieux (PIT), var með mark og stoðsendingu.

Önnur úrslit:

Dallas Stars - 4
Vancouver Canucks - 0
————————
Colorado Avalanche - 2
Ottawa Senators - 5
————————
Anaheim Mighty Ducks - 2
Nashville Predators - 1
x ice.MutaNt