compressor getur verið einsog besti vinur þinn,
sem er með þér í upptökunni og/eða mixinu
og passar uppá að “óreglulega” rásin sé ekki jafn
erfið…

óreglulega rásin er nefnilega þannig að vera
stundum ofsalega veik og lág
og stundum er hún svakalega há,

þá er svo gott að eiga góðan vin, sem fylgist með
rásinni,
og þó hún sé hátt stillt í mixinu (til að það
heyrist í henni þegar hún er veik og lág),

þá passar vinurinn uppá að lækka í henni þegar hún
verður of há.



Hve mikið hann lækkar: það er ratio
Hve “viðkvæmur” hann er fyrir of háum hljóðum: það
er threshold
Hve fljótt hann bregst við og lækkar: það er
attack
Hve fljótt hann hækkar í henni aftur: það er
release



vonandi hjálpar þetta einhverjum,

kv
LPS91
Bassadót: FBass BN5 & MusicMan Bongo5 -> Line6 Relay G50 -> Ampeg PF500 -> Ampeg PF210HF