Ég var að spila TFC um helgina og þar voru menn sem voru ekki að fatta hvað átti að gera sem engineer.
Ég mundi halda að hans verk sé að verja fánann eða virkið okkar en ef einhver veit betur þá má hann leiðrétta mig á því.
Ég er vanalega alltaf sem engineer og stend mig vel í því en um helgina var einhver gaur sem engineer einnig og það eina sem hann gerði var að hlupa um með haglabyssuna og reyna að drepa einhvern.
Þegar borðið var búið þá var hann með 4 á móti 30 og það var svolitið leiðinlegt því við Red Team töpuðum með 40 stiga mun.
Ástæðan fyrir því var sú að mitt hlutverk sem engineer er það að verja dæmið og það gekk ekkert sérstaklega vel einn.
Það fer örlítið i mig þegar menn eins og hann sem kunna ekkert að þeir skuli ekki velja HWGAUY eða eitthvað annað hlutverk sem felst í því að sækja framm.
Ég marg reyndi að kalla á hann og reyna að kenna honum hvernig á að gera þetta en hann virtist vera ólæs þannig að það þýddi ekkert.
Nú í næsta borði þá birtist hann aftur sem Engineer en gafst fljótt upp á því og færði sig sem Soldier og þá kom einhver gaur sem vissi hvernig átti að vera engineer og við unnum borðið
110 á móti 0 þannig að þá kom engineer mikið fyrir sögu.

Hvað finnst ykkur um svona aðstöðu.
KV