Tekið af http://aspire.8tt.org/

Mótinu var frestað vegna prófa í grunnskólum og framhaldsskólum. Við munum halda áfram næsta þriðjudag (18. desember). Við erum einnig búin að setja inn upplýsingar um öll þau lið sem eru skráð undir Staða.

Það er gott að fá fréttir hvernig mótið stendur, en eins og þið sjáið eru þeir byrjaðir að hýsa síðuna annars staðar.

Þið getið séð stöður riðla með því að smella á eftirfarandi tengla:

Riðill A
Riðill B (titill beggja síðanna er Riðill A :s)

Þetta er mjög skrýtin staða, til dæmis er OMG búinn að vinna einn leik 28-2 og tapa einum 16-14 en samt stendur að þeir séu með 28-2 í Stig.

Ekki búið að uppfæra efri dálkinn mv. neðri.

Bætt við 12. desember 2007 - 22:38
Einnig ef við tökum til dæmis Impulse, þeir eru búnir að vinna 2 leiki og tapa einum skv. neðri töflunni í A-Riðli en skv. efri töflunni eru þeir búnir að vinna 3 leiki, samt eru bara 2 umferðir búnar, train og inferno :s

Furðulegt.