Þannig er að mig DAUÐlangar að spila counter strike á netinu en ég veit ekki hvað á að gera. Ég hef leikinn, ég er búinn að downloada alveg gommu af hinu og þessu en svo gerist ekkert þegar ég reyni að keyra leikinn. Mér finnst vanta idiot proof upplýsingar á HL síðuna á Huga.is sem segir HL byrjendum eins og mér nákvæmlega hverju ÞARF að downloada, hvað ÆSKILEGT er að downloada og hvað GAMAN er að eiga…

Flott væri ef einhver snillingurinn gæti gert þetta og kannski sem fyrst því ég er búinn að reyna svo lengi að komast inn að ég er orðinn sköllóttur og það er ekki sökum aldurs.

Takk