Ég verð nú að koma á framfæri hvað ég er pirraður út í ákveðnar nafnlausar manneskjur í íslenku CS menninguni. Það er nefnilega þannig að það eru nokkrir góðir spilarar sem fara í taugarnar á mér þegar þeir eru með móral út í lélegri spilara (eins og mig). Þetta er nú ekkert nema egóismi og mont og þetta fer í taugarnar á mér og örugglega fleirum. Ég held nú að ég hef verið ekkert nema almennilegur gagnvart öðrum CS spilurum og mér mundi finnast ágætt ef sumir myndu láta eins. En eins og ég segi ætla ég ekki að segja nein nöfn (nick), because you know who you are!

dArkpAcT
[pirraður einstaklingur]