Mikið hefur verið um að vera hérna undanfarnar viku eða tvær. Og virðist sem mikið skítkast hafi verið í gangi, bæði á korkum eftir sjálfan mig sem og öðrum. Ég vona bara að menn séu ekkert sárir því þetta er gert í nafni skemmtunar og fíflaskaps.

Flestir þeir sem hafa spilað í einhvern tíma vita hvernig þetta er með GGRN meðlimi, við lítum svo rosalega stórt á okkur að við höldum því fram (sem er rétt náttúrulega (: ) að við erum guðir meðal manna, að við séum flest allir bara rithöfundar sem á eftir að uppgötva, að einhver mikill hjá Mál og Menningu og svipuðum stofnunum séu að lesa þessa korka og uppgötvi okkur. En mest af þessu er bara grín, skemmtun og fíflaskapur.

En okkur þykir líka gaman að rífa kjaft og vonast eftir því að einhver hóti að lemja okkur á skjálfta svona til að hressa uppá þetta allt saman, svo hlæjum við dátt þegar þessi yndislegu “halltu kjafti ógeðið þitt” og “sjúgðu mig þarna n00binn þinn” svör koma. Sennilega erum við bara of gamlir fyrir þessa korka, en engu að síður höldum við áfram (allavega ég, þar sem ég er nú í yngra lagi) og vonum að menn haldi áfram að rífa sig alveg ofaní rassgat hreinlega.

En vonandi munu menn svara okkur hérna á huga þar sem við getum svarað fyrir okkur og ekkert vera að private msg'a okkur á irc eða vera rugla eitthvað á klankorkum eða þvíumlíku þar sem við getum ekkert sagt, (skot óli, ég bara varð (: ). En lifið heil og rífið kjaft ;D<br><br><u><font color=“Red”>RuglHaus</font></u> <b>No.1</b> í Röðum “GaGa”RíNs

<a href="http://www.beyglan.com/bandito">[GGRN]Bandito</a> Alveg stjörnuvitlaus