Já strákar og stelpur.

Með miklum ótta hef ég ákveðið að skrifa hér pistil, eitthvað hefur nú áhrif á mig það góða sem var sagt um síðasta pistil minn því ég sá ekkert slæmt og ef það var eitthvað slæmt um mig sagt þar eða þann pistil þá skildi ég það ekki en nóg um það. Mikið hefur gerst undanfarna daga og hefur verið skrimmað mikið á serverum og margur hefur drepið ófáan óvininn og verið ánægður með en ekki er öll hamingjan eins því til að einn sé ánægður þarf annar að vera alveg trítilóður hinum meginn ásakandi menn um hax. En hvað sem því líður þá verða allir óánægðir þegar í miðju skrimmi er öllu restartað og verður oft á tíðum allt bandbrjálað og skítkast byrjar og ásakanir sem eiga sér enga stoð né styttu og kemur gjarnan í ljós að enginn hefur breytt rcon og mun rcon vera default og einhver ódæðisdrengur, eða stúlka, hefur notað hið góðkunna forrit “All Seeing Eye” til að eyðileggja fyrir hinum…………………. eftir marga fundi og mikið af spögúleringum þá höfum við komist að því að þetta hlýtur að vera komið frá……………….. frá…………….. frá NEF!!!!!! Já ég sagði það og gætu afleiðingar orðið virkilega slæmar en þetta þurfti að koma fram. Ég held því fram þótt stjörnuráð míns klans hafi ítrekað haldið fram að ég hafi ekkert á að byggja þessar ásakanir mínar og jafnframt haldið því fram að ég hefði sennilega átt að taka tvær töflur þegar ég vaknaði í morgun í stað einnar þá hef ég legið margar nætur andvaka yfir þessu og ég held því fram að í þessari stofnun sé verið að þjálfa stóran hóp af illskeyttum mönnum, mönnum sem eru jafnframt illa haldnir af þeim illa sjúkdóm sem ég hef nú nefnt “BenDoverIsmi”. En nú mun einhver verða fyrir miklu aðkasti og afleiðingar þessa korks munu verða stórvæglegar.

Ég hef skrifað.

Þessikorkurhefurengastoðíhinumraunverulegaheimiogvinsamlegastlesiðekkiþessalínu.<br><br><u><font color=“Red”>RuglHaus</font></u> <b>No.1</b> í Röðum “GaGa”RíNs

<a href="http://www.beyglan.com/bandito">[GGRN]Bandito</a> Alveg stjörnuvitlaus