Fyrir stuttu kom evrópulinkurinn. Og núna þegar maður refreshar Vestur-evrópska servera, þá er maður með mjög gott ping, eða allaveganna spilanlegt lagg myndi ég nú segja. Aður fyrr fór það yfir 100, en núna er það 50 - 70, amk í bretlandi. Og þá fer maður að velta því fyrir sér, hvernig væri að blanda geði við erlend leikja samfélög? Annað en gamesnet, það er amerískt, og quakenet er eiginlega bara með skandinavískt fólk. Ping í scandinaviu er ekki hið besta, og það er uþb 80 - 110. Þannig að maður vill ekkert vera blanda geði við þá, og þeir taka ekki vel í það þegar maður reynir að tala ensku við þá. Koma bara með eitthvað rugl og segja eitthvað sem maður skilur ekki. Þannig að er ekki hægt að blanda geði við ljóta landi sem liggur yfir atlandshafið, bretland? Er einhver irc server eða eitthvað álíka sem maður getur leitað til?

Einhver fleim eru ónauðsynleg, sorry, ég veit ekki betur..
Og já, enginn er að neyða ykkur í að lesa þetta rugl.. Nennti ekki að vanda þetta, hafði þetta bara í belg og biðu :/