Þar sem fixer bjó til sinn eigin kork fyrir sínar spár þá setti ég bara mínar í sér kork líka (já þær voru einhvað í laumi þarna í korkinum hjá salas).

Zero5 vs DON.CS
——————–

Zero5 og DON.CS eru af svipuðum styrkleika að ég held í þessu borði þannig að það má búast við skemmtilegum leik. Ef z5 mætir með lið þ.e.a.s. Leikurinn getur farið á báða vegu en ég held að z5 rétt kreysti sigur í lokin.

z5 14-10 DON.CS

Synergy vs Legion
——————–

Jæja Van Damme klanið á móti sjónvarpsstöðinni Sýn. Ég held að Van Damme taki hringspark í magann á Sýn og þessu lýkur fljótt af. Annars gerist ég kartöflubóndi á Eyjafirði.

Legion 18-6 syn^

UNited - nsp
——————–

Þetta verður sennilega ekki spennandi leikur en maður veit aldrei hvað UN geta verið með í pokahorninu. Norðlensku Sveita Peyjarnir vinna þetta með hjálp Kjarra sem heimtar að fá að “freelancea” sem T og breytist í ógurlega mulningsvél!

NSP 16-8 UN

Ice.CS - Tval
——————–

Ice, vanilla ice baby! Tval, því miður þá eruð þið ekki nógu heitir fyrir kuldann!

Ice.CS 21-3 TVAL

1 deild Riðill 2.

LSD - GEGT1337
——————–

Lyklaborðslemjararnir í GEGT1337 ná yfirhöndinni í byrjun leiks en ég býst við að sýrutripperarnir geri comeback í lok leiksins þegar þeir átta sig á því að þeir eru með byssur en ekki blóm í höndunum!

GEGT1337 15-9 LSD

diG - Drake
——————–

Uh.. nærbuxnadvergarnir ræna servernum sem við spilum á og allir deyja :(

[VON] - Org
——————–

VON ættu að koma vonandi sterkir til leiks. Ég hélt að Org væri pug lið en raunin virðist vera önnur :O. Org eru með hittnina með sér og kreysta fram sigur.

Org 17-7 VON

GGRN - MurK.cs
——————–

Murkararnir láta brjálaða norðmanninn hlaupa um vígvöllinn og slátra öllu sem hreyfist. Krissi öskrar á færeysku ókvæðisorð til GGRN manna og þeir flýja með hótunum um að skrifa ófögur orð um súkkulaði strákana í MurK.

MurK.CS 22-2 GGRN

2 Deild riðill 1.

Exile - Adios
——————–

Exile verða sendir í útlegð af mexíkönunum. Miðað við það sem ég hef séð af Exile og Adios þá verður þetta stuttur leikur.

Adios 19-5 Exile

GreenBerets - [3Gz]
——————–

Heyrst hefur að NIG3L taki í gikkinn í kvöld fyrir Þrjá Grænu znjókallana í kvöld. Reyndar þá hef ég ekki hugmynd um það en þetta er spáin mín þannig að stfu.

3Gz 20-4 GB

SpEaRs - DPz *
——————–

dunno.. hélt að SpEaRs væri einhvað djók klan og DPz væri einhvað lan klan. Litla skrímslið í hausnum á mér segir að DPz vinni.

DPz 15-9 SpEaRs

[.IFF.] - nudeKrew
——————–

Íslensku Frelsis Fánarnir mæta sterkir til leik og flengja nöktu dónaköllunum í kvöld. Löggan verður á svæðinu og róar æstan almenninginn.

IFF 18-6 nK

2 Deild riðill 2.

War Monkey's - EVIL
——————–

Apastrákarnir henda banönum í illskuna. En bananar hafa engin áhrif á illskuna sem keyrir óhindrað yfir þá.

EVIL 19-5 WM

NeF - Mister

NeF, NeF, NeF.. .. alls konar rumpulýður sem ég hef aldrei séð eða heyrt um áður er víst genginn í herbúðirnar. Mister eru óþekktir og eru örugglega með leyni D:. NeF skátarnir gleyma sér á public á meðan Herramennirnir bíða fúlir inni á server.

Mister 13-11 NeF

SOI - Caedes
——————–

Synir Íslands eru búnir að vera í leynilegum herbúðum hjá félögum sínum í MurK.CS og ég held nú bara að þeir eigi ekki í neinum erfiðleikum með að sparka í Caedes. Það lengi sem muna eftir að AWP er ekki RG ;O

SOI 18-6 Caedes

fallen.nei - cK'
——————–

Nei sko, annað Qveik lið að renna fyrir sér í CS. Og nei sko.. annað íslenskt lið sem notar alveg eins skammstöfun og útlenskt lið (fyrra liðið var GB). Ég held að fallen komi á óvart og vinni nýgræðlingana í cK.

f.nei 16-8 cK

svona..

<br><br><b>Drake | Shock</