Jæja, þá fer 4. umferð TCS2 að hefjast.

Ég ætla að koma með spá hérna eins og síðast, vona að ég hafi AÐEINS meira rétt fyrir mér í þetta skipti. :)

Minni fólk á að endilega henda upp IRC-Bots og/eða HLTV's ef þið getið.



A-Riðill:

LSD 14 - 10 NeF
- LSD er clan sem hefur lifað alveg hreint ótrúlega lengi miðað við önnur clön af þeirra styrkleika. Þeir eru búnir að vinna báða fyrstu leikina sýna mjög öruggt, reyndar ekki á móti sterkum clönum en samt lofar góðu. NeF hinsvegar er búið að vinna 3 fyrstu sýna, einn á forfeit og 2 með 13-11 skori. Þetta verður jafn og skemmtilegur leikur og LSD tekur þetta á endasprettinum.

SiC 24 - 0 Lord
- Ég segi að sjálfsögðu að mínir menn taki sinn leik auðveldlega. Búnir að vinna alla okkar og hér heldur það áfram. Lord eru búnir að vinna einn, tapa einum og sitja hjá í einum, munu kannski ná 2-3 roundum en ég held samt ekki. :)

VON-2 18 - 6 HIGH
- VON menn búnir að vinna 2 og tapa einum mjög naumt. Munu taka þetta nokkuð létt. HIGH menn búnir að sitja hjá í einum og tapa hinum 2. Munu ekki eiga neinn stórann séns í VON í kvöld.

Hate 14 - 10 Dc
- Stórleikur umferðarinnar. Hate menn búnir að vinna 2 létt og svo naumt vs VON-2. Dc búnir að vinna 2 á forfeit og tapa einum. Dc strákarnir eru mjög fínir og munu standa vel í Hate en þeir munu ekki hafa í við Hate á endasprettinum.

GGRN-Leibstanarte 18 - 6 DeWalt
- Veit voðalega lítið um þessi lið, annað en skorið þeirra segir. GGRN búnir að tapa 2 og vinna 1. DeWalt hinsvegar búnir að tapa sýnum 3. GGRN samt eiga að hafa þetta nokkuð létt.

GEGT1337 6 - 18 DON
- DON eru að koma upp í CS, eru búnir að sanna skillz í AQ og nú er komið að CS. GEGT1337 er eitt svalasta clan íslands enda spila þeir mestmegnis bara til að leika sér, nota rugl byssur o.fl. DON mun taka þetta nokkuð létt.



B-Riðill:

Senior 14 - 10 TVAL
- Veit voðalega lítið um stöðu þessara liða annað en skorið segir, eins og með GGRN leikinn í A-riðli. Senior búnir að vinna 2 og tapa einum. TVAL hinsvegar búnir að tapa öllum 3. Senior tekur þetta í close leik.

UN 2 - 22 MurK-A
- MurK-A eru einfaldlega ósigrandi fyrir smærri liðin. MurK búnir að vinna alla sýna, UN búnir að vinna 2 og sitja hjá einn. UN mun samt ná að pota inn 2 roundum ca.

VON-1 16 - 8 MOD
- VON-1 eru allir lanaðir eins og venjulega held ég, lanseturs pakk. :) VON-1 búnir að tapa 2 og vinna einn. MOD eru líka búnir að tapa 2 og vinna einn. Held samt að VON séu mun sterkari og taki þetta frekar létt.

Love 24 - 0 Corpse
- Love sterkir að venju, með skor 2 sigrar og sitja hjá í einum. Corpse hinsvegar búnir að tapa 2 og sitja hjá í einum.

GGRN-Das Reich 16 - 8 GD
- GGRN búnir að vinna einn, tapa einum og sitja hjá í einn. GD búnir að sitja hjá í einum og tapa 2. GGRN tekur þetta á reynslunni. :)



Jæja, þá er það komið. Höfum svo gaman af þessu !

Fyrir hönd Thursinn Counter-Strike,
Sigurður H.
TCS|Siggi
Sigurður Helgason