Sæl öll.

Mér datt í hug að hafa hérna smá keppni til að lífga upp á áhugamálið og gera það aðeins skemmtilegra. Þessi mynd af afstöðu Hralla gaf mér hugmynd. Hafa keppni um bestu aðstöðuna.

Þetta er nokkuð frjálst, þú mátt pósa sjálfur á myndinni eða gera þetta spes og hrúga rusli í kringum tölvuna eins og Hralli það skiptir ekki máli. Það eina sem þú þarft að gera er að skýra myndina “Keppni - nafn á mynd” annars verður hún ekki tekin með. Ef Hralli vill taka þátt þarf hann að senda mér póst hérna á huga þá tek ég hann með.

Nú það er nú engin keppni án verðlauna og því datt mér í hug að sá sem vinnur fær að taka þátt í kosningu um top10 liðin á Íslandi í cs1.6.

Engu er að bæta við nema að segja good luck and have fun!
"Choose a job you love, and you will never have to work a day in your life." -Confucius