Ég ætla ekki að reyna að kryfja þetta hér, það er einfaldlega ekki hægt…. En….

PB er dauður, (krossa yfir brjóst mér) en hann er víst ekki alveg ónýtur. Öll svindl nota víst einhverskonar cvar sem hægt er að einangra og setja í PB stillingar servera. (hef enga persónulega reynslu í þessu, hef etta bara frá einhvurjum úttlendingum).
Bendi á CAL/CPL ef einhverjir vilja nánari útlistingar.

Það eru alltaf einhverjir sem hafa rangt fyrir, hvar sem er, í hverju sem er, sama á líka við “online game-ing”

Hvað er hægt að gera?

1. Valve hefur að þvi er virðist staðið sig einstaklega illa í þessu.
Hverjir gerðu Valve að því sem þeir eru..? Við (kannski ekki við þessar fáu íslenzku hræður) en leikja spilendur heimsins. Getum við gert eitthvað í þessu? Nei. Við erum búnir að borga, og ef þeim líst svo á, geta þeir gefið okkur langt nef (sem mér finnst þeir vera að gera)

Half life vélin (engine) er mjög opin. Þess vegna eru til svona mörg mod fyrir HL. Mér skilst að sama ástæða sé fyrir því að svona mörg svindl séu til fyrir þessa vél.
Er Valve að spara þróunarvinnu í Half-Life til að koma TFC2 fyrr út? (þeim veitir nú ekkert af því). Kannski.
Verður TFC2 svindl laust.. varla.
Kannski meikar þetta ekki mikið sens, en mér finnst að Valve gæti stutt mun betur við bakið á gullgæsinni sinni.
Ég ætlast samt ekki til þess að þeir eyði svindlum (og svindlurum) í eitt skipti fyrir öll… en betur má ef duga skal.