Sælir.

Skjálfti hefur ýtt undan þúfu nýjum server - Simnet RANKED_AIM.

Það sem er frábært við þennan server er að öll frögg eru talin til stiga og verður top 50 listi hvers mánaðar birtur á www.counter-strike.is/aim.

www.counter-strike.is/aim er uppfært á 15 mín. fresti allan sólarhringinn og miðast öll dráp við STEAM_ID.

Ef af einhverjum ástæðum þú ert skráður sem “Mamma hans joa! :D:D:D” og þú vilt láta breyta því, þá er það minnsta málið, talar bara við einhvern á #counter-strike.is og biður um þessa breytingu :)

Ef þeir vilja fá sönnun, þá ber ykkur að verða að þeirri ósk, bara svona svo að við höfum það á hreinu :)

Mappack má finna á www.counter-strike.is/aim.
Eina sem þið þurfið er að gera er að installa og unzippa og fylgja svo leiðbeiningunum sem eru í readme.txt.
Ef það myndast þrýstingur um að taka eitthvað map út eða setja nýtt inn þá verður auðvitað við þeirri ósk :)

Ætla ekki að hafa þetta neitt lengra, þið vitið amk af þessu núna ;)