Þeir sem lögðu leið sína til Akureyrar um helgina til þess að taka þátt í BMX keppninni urðu að bíta í það súra epli að hafa ekki getað hjóla eins mikið og til stóð? Eins og flestir vita og/eða komust að þá var keppninni frestað vegna djöfullsins rigningar, en samt sem áður vil ég þakka þeim Bjögga, robba, sindra og fleirum sem fóru bara til Akureyrar að hjóla á BMX núna um helgina.

Jæja.
Það verður BMX mót núna næsta Laugardag, það er 2.september. Mótið verður haldið í skate parkinu í mosfellsbæ kl 14.00

Eins og áður verður keppt í þremur greinum:

# Bunny hop bmx/mtb

# Best trick BMX

# longest skid/skrans keppni bmx/mtb

Ég vil minna á að mæta tímalega fyrir þá sem ætla að taka þátt og skrá sig, og skráning fer fram í parkinu fyrir keppnina.

Þið sem ætlið að keppa megið endilega láta vita hér á huga ef þið ætlið að mæta?

BMX Samband Íslands
KHE Bikes
khebikes.com

Kveðja LEMMY
www.khe-bmx.com