Ég ákvað að fjárfesta í þessum disk eftir að hafa farið á síðuna hans Inga og hlustað á demóin!
Þessi diskur kom mér skemmtilega á óvart, þar sem ég var ekki með miklar væntingar og bjóst ekki við neinu feitu. En svo þegar ég smellti honum í spilarann kom annað á daginn, þar sem þessi diskur er tær snilld. Öll lög vel unnin, góðir gestarapparar og öll beatin til fyrirmyndar.

Að mínu mati eru bestu lögin:

“Heyrðu” ásamt Didda Fel

“Hver ertu?” þar sem Kjarri, 7berg og Stjáni aðstoða Inga.

“Mosó” þar sem Dóri sér um rappið


Svo er “Knoe Dat” þar sem Raks One rappar geðveikt gott. Samt erfitt að gera upp á milli laganna, því þau eru öll geðveik. Svo eru instrumental lögin mjög góð!

Ég skipa ykkur að fara og fjárfesta í diskum, lofa að þið eigið ekki eftir að sjá eftir því!


Til hamingju Ingi, færð 4,5 stjörnur af 5 mögulegum frá mér!
_____________________________________________________________________