Órappandi wannabe dreifari með heymæði
Sem situr því inni alla daga að æfa flæðið
Rappandi á netinu, geðveikur thug með lappann í fletinu
En sennilega hreinn sveinn, 120-og einn á hæð
50 kíló, þaraf 6 í bólur, þykist kex-óður
finnst hann sjálfur fyndinn og grófur
því hann talar um sundurtætt líffæri
og hvernig einhverjum blæðir
ef þú ristir upp á honum innanvert lærið
sama bullshit dæmið, í hverri einustu rímu,
já Rattó, hann stendur fyrir sínu,
í hverri viku, við hikum fyrir vikið
ef hann póstar einhverju artí, en hikið
varir stutt, því ritið,
sem væri en jafnvel enn verra flutt,
sökkar eins og alltaf.
Máttlaust diet-rapp, fitusnautt og ósaltað
Ekki einungis laust við öll svalheit og allt það:
Drengurinn hefur raust á við geit og það,
Er fokking fáránlegt þegar hann hálf-rappar, hálf-stamar
Eyrum til ama, aldrei framar
Má hann grípa í mic eða penna,
Eða ég mun allavega ekki nenna
að renna yfir eða hlusta á rusl það
sem fíflið hefur taktlaust og máttlaust böstað.

Ég tek það fram ég hef ekki, svo ég muni, heyrt hann rappa neitt, þó ég hafi lesið texta. Sá bara honum finnst gaman að svona dissi og svo var hann eitthvað að bögga textann minn hér á undan…