Ég er annálaður fyrir allmennt bögg hér á síðunni. Bjó til texta um það. Bæði svo fólk geti hefnt sín og svo ég geti, jú, almennt böggað.

Kem undan vetri enn með góðan forða/ góðra orða/
Var nægjusamur; lét dugað skíta, sofa og borða/
og forðaðist að beita tungukorða/ meðal manna
Og ég fann að/ að styrktist við sjálfsett bann það/
Glotti og þagði/ hvað sem hver sagði/
Fífl reynað koma á mig höggi/ með meinlausu böggi/
Á meðan ég þjálfa mig eins og austurlenskur munkur/
Dregið til stafs í allann vetur/ og enn enginn punktur/
Jú við sjáum hvað setur/ en ég tel mig munda penna betur/
En hip hop slýið sem Huga þekur/
og tekur/ vart að minna á þann textaskít/
sem á þær fjörur rekur/ ég flýt/
á yfirborðinu/ á meðan þið sitjið botninn/
brotnir undir orðinu/ sem reyndist ykkur ofviða/
ljóðin verri en auglýsingarríma aftan á bíómiða/
talandi um byssur og dóp eins og kólumbískir málaliðar/
ég steig til hliðar/ í vetur/ en ég sé ykkur miðar/
ekkert áfram;/ (skamm)/ gerið betur/