Notandanafn: Lykilorð: Muna   | Nýskráning | Allt gleymt
  á - Ítarleg leit
  GREINAR 
Höfundur:
rawquZ
Dags:
17. febrúar 2008 - 15:44
Samþykkt af:
Omerta
Fjöldi lestra:
1945

Gefa álit

Dj Premier á Gauknum 15 Mars!

Kronik Entertainment og Tuborg kynna:

Dj Premier á Gauknum 15 Mars!

Laugardagskvöldið 15 mars n.k. þá mun Kronik Entertainment fagna sínu 7 starfsári og ætlar að því tilefni að slá til veglegrar veislu á Gauknum undir formerkjum Kronik Klassik. Fram kemur enginn annar en plötusnúðurinn og goðsögnin Dj Premier, en hann er talinn einn áhrifamesti plötusnúður og taktsmiður í bransanum í dag, enda maðurinn á bakvið alla helstu hiphop slagara fyrr og síðar. Þetta er veisla sem enginn sannur tónlilstarunnandi má missa af.
Forsala miða hefst Mánudaginn 18 Febrúar á midi.is og í verslunum skífunnar. Verð í forsölu er 2500kr.

Dj Premier hefur verið nefndur sem einn færasti hiphop taktsmiðurinn í bransanum fyrr og síðar. Hann átti mikinn þátt í frægðarsól manna eins og Notorious B.I.G., NAS, Krs-One, M.O.P. Common, Jay-Z, Jeru The Damaja og Group Home svo fáeinir séu nefndir. Dj Premier er einnig annar helmingur tvíeykisins Gang Starr en hinn meðlimurinn, Guru, kom einmitt hingað til lands 2001 og gerði þá allt vitlaust á Gauknum.
Dj Premier hefur einnig ljáð takta sína til ekki ómerkari listamanna en Macy Gray, Janet Jackson, D´Angelo, Christina Aguilera, Snoop Dogg Craig David og Limp Bizkit og má segja að listinn sé óendanlegur. Hann er nú á stuttum Evróputúr og ætlar því að koma við á Íslandi til þess að skemmta landanum. Með honum í för verður Blaq Poet en hann mun munda míkrafóninn á milli laga. Upphitun verður auglýst síðar.

Nánari Upplýsingar um Dj Premier.

http://www.myspace.com/djpremier
http://djpremiertrackology.8kilo.com/

Aldurstakmark?

------
What's the officer, problem?
pott þétt 20 inn

------
You laugh at me because I'm different, I laugh at you because you are all the same!!

hiphopdolgar.central.is

msn: diddi@druzlur.com
er þetta ekki nákvæmlega það sama og stóð á midi.is ?
held hann sé nú bara meira að auglýsa þetta en koma með einhver braking news.

------
andrig@gmail.com
Veit einhver hvernig þetta verður hjá honum ? þá meina ég hvort hann spilar bara taktana eða mun einhver rappa undir ? Eða mun hann bara spila frægustu lög sín af geisladiskum ?

------
(\__/)
(='.'=) Vísdómsorð kanínunar
(*)_(*)
Pick battles big enough to matter, small enough to win. ~Jonathan Kozel
Geisladiskum? Is you crazy?
Svo verður Blaq Poet með í för.
Haha auðvitað vissi ég að það væru ekki geisladiskar :D En ég var bara að pæla hvort hann spilaði bara t.d bestu lögin sín með t.d jeru og gangstarr

------
(\__/)
(='.'=) Vísdómsorð kanínunar
(*)_(*)
Pick battles big enough to matter, small enough to win. ~Jonathan Kozel
Já held það sko og enn fleiri slagara. Örugglega crazy kvöld!
Hann er með dj set, og svo er Blaq Poet að peforma með honum. Dj premier er svo að öskra að sínum hætti á milli laga, og hann spilar jú mikið af sínum fjölmörgu hitturum ásamt fleirrum. Þetta er kvöld sem enginn má missa af!!!!!
það er svo ömurlegt að hafa aldurstakmark á hip hop tónleikum...það er fkn sökkað

------
http://www.soundcloud.com/studiohladbaer
vá hvað ég hata þessi fokkin aldurstakmörk! geez..
það er líka e-ð 20+ inná pete rock!
ég veit það en frændi minn reyndi að redda mér inná pete rock en það virkaði ekki

------
http://www.soundcloud.com/studiohladbaer
Hugi.is
Hjálp | Um Huga | | Notkunarskilmálar | Auglýsingar