Flestir sálfræðingar og taugavísindamenn líta nú á hugann sem virkni heilans, og virkni hefur ekki massa fremur en virkni bíls (þ.e. að keyra) hefur massa. Það er kvíavilla (category mistake á la Ryle, þ.e. flokkunarvilla) að skilja á milli huga og heila.
Svo er talið að greind ráðist ekki endilega mest af massa heilans (þótt einhver tengsl séu þar á milli) heldur fremur af fjölda og gerð taugatenginga innan hans.