Tek undir með TestType, slepptu þessum brennslutöflum.
Mikilvægustu atriðin í sambandi við brennslu eru:
1) Matarræði
2) Þolþjálfun (og þá gildir “hærri púls = hærri brennsla”)
3) Styrktarþjálfun (til að halda í sem mestan vöðvamassa)
Ég er sjálfur að fara í brennslutímabil núna. Ætla að fækka lyftingardögunum frá 6 niður í 3 og byrja að brenna 3x í viku í staðinn.