Egg gera þig fegrurri og hraustari að utan og innan.Þau innihalda A,E og D vítamín sem eru öll mjög góð fyrir húðina.

Maski fyrir þurra og viðkvæma húð:
1 eggjarauða
1 msk appelsínusafi
1/2 tsk möndluolía
Blandið vel saman. Má bera á hreint andlit,olnboga,hné og hendur.Látið þorna í u.þ.b 15-20 mín.Þvegið af með volgu vatni.

Maski fyrir feita og óhreina húð

2 eggjahvítur
1 msk sítrónusafi
Þeytt vel saman.Eggjahvítan er næstum hreint prótín sem er gott fyrir húðina.Má bera á hreint andlit,bringu og bak.Gott er að bursta bringu og bak áður.Látið þorna í u.þ.b 15-20 mín. Þvegið af með edikblönduðu vatni(ein tsk. edik í eitt vatnsglas)

'Eg sá þetta inní eggjabakka og spyr: Hefur einhver prófað þetta og hvernig var árangurinn?
Mér finnst þetta mjög forvitnilegt og áhugavert.
Kveðja