Snilld sem ég fann á speglinum á visir.is

Óskalisti Barbie

Kæri Jólasveinn. Hlustaðu nú litli feiti ljóti dvergur.
Ég hef hjálpað þér öll þessi ár og verið besta og
fullkomnasta jólagjöfin, komið fram í misjöfnum veðrum
í efnislitlum gerfibaðfötum og ég get sagt þér það
hefur oft verið hræðilega kalt. Mér finnst leiðinlegt
að segja það en…
en jólasveinn ég finn mig ekki í þessu lengur…
Nú er kominn tími til að breyta til um þessi jól. Ef
það gerist ekki mun ég sjá til þess að að það verði
haldnar Barbie brennur um allt land - ég gæti nú trúað
að þér þyki fnykurinn af þeirri brennu ekki
eftirsóknarverður.
Jæja jólasveinn hér er þá óskalistinn í ár:
Mig langar í

1.mjúkar bómullar stuttbuxur, og stórn víðan háskólabol
í stíl. Ég er orðin hundleið á að líta út eins og
mella. Er engin takmörk á því hve baðfötin geta verið
lítil og vesældarleg? Og meðal annarra orða - veistu
hvernig það er að hafa nylonbuxur og með frönskum
rennilás inni í rassborunni.

2. Raunveruleg nærföt sem auðvelt er að fara í. Helst
hvít. Hvaða bölvaður asni ákvað að framleiða þessa
nærfataeftirlíkingu sem festist við húðin á mér þannig
að það lítur út fyrir að ég sé með appelsínuhúð.

3. Svo vil ég fá alvöru KARLMANN - t.d. Action man. Ég
er orðin svo hundleið á þessum væmna aumingja honum
Ken. Og svo er hann kominn með eyrnalokk ekki skánar
hann við það. Ég þjáist að vera nálægt honum. Í guðs
bænum gætir þú ekki skapað hann lífræðilega rétt og með
tilheyrandi tólum.

4. Ég óska mér að fá handleggi sem ég get beygt svo ég
geti ýtt áðurnefndum Ken-ræfli frá mér þegar búið er að
útbúa hann rétt .

5. Ég vil fara í brjóstaMINNKUN Mér er alveg sama hvort
þú þarft að snúa upp á handleggi á e-m lækni - ég vil
fara í brjóstaminnkun

6. Íþróttabrjóstahaldara til að nota þangað til ég fer
í brjóstaminnkun.

7. Nýtt starf. Dýralæknir eða kennari er algerlega out.
Hvernig líst þér á að ég verði kerfisfræðingur,
verðbréfasali eða vinni við almannatntengsl.

8. nú verður þú að fara að skapa 2002 karakterinn. T.d.
fyrirtíðaspennu Barbie, fylgihlutir með henni gætu
verið poki með kartöfluflögum, Og lítil askja með
súkkulaðibitakökum eða rjómaís. Nú eða Hættu að reykja
Barbie með Nikotín plástri og tyggjó.

9. Að lokum - það er nú kominn tími til að ég fái að
kaupa hlutabréf í fyrirtækinu (Mattel). Ég er búin að
vera hér í 42 ár svo mér finnst þetta ekki ósanngjörn
krafa. Ég meina það Jóli.

Jæja þetta er nú það sem ég fer fram á. Þegar tekið er
tillit til verðmætaskapandi framlags míns til
samfélagsins finnst mér þetta sanngjarnar kröfur. Ef þú
gengur ekki að þeim skaltu bara finna þér einhverja
gæru til að taka við um næstu jól. Svo einfalt er það.


Þín einlæg Barbie.