Jæja, þá eru bara bæði jólin og áramótin búin. Maður er búin að éta yfir sig, sofa langt fram eftir degi og fá fullt af gjöfum.
Það er samt misjafnt hvað fólk fær yfirleitt mikið af gjöfum. Ef við tökum mig sem dæmi: Pabbi minn á 9 systkini og mamma mín þrjú þannig að þetta er slatti, og svo eru það foreldrarnir, ömmurnar og afarnir, vinkonurnar og svo mætti kannski telja lengi áfram. Aðrir eiga kannski alla þessa ættingja en fá ekki frá þeim. Svo eru þessar reglur sem sumar fjölskyldur hafa tekið upp. Í minni fjölskyldu er það þannig að þegar krakkarnir eru komnir yfir fermingu fá þeir ekki lengur gjafir frá systkinum foreldra þeirra. Þá hefur gjöfunum kannski fækkað úr 25 í ca. 10. ég hef ekkert á móti svona reglum, ég meina einhvern tíma verður maður að hætta að skiptast á gjöfum. En það eru kannski ekki gjafirnar sem skipta mestu máli, en þær eru jú partur af jólunum. Er það ekki?