Jæja, hvað skyldu nú dómararnir hafa fengið stóra upphæð fyrir þennan leik?
Trekk í trekk dómaraskandall.
Ég er nú ekki ein af þeim sem kenni dómurunum um úrslit leikja. …En í þessum leik á móti Austurríkismönnum var það hverjum og einum heilvitamanni ljóst.
Það versta fannst mér þegar Alexander náði að stela boltanum og það voru 2 menn hangandi á honum og svo hrintu þeir honum í gólfið… ekkert dæmt. Svo þegar þeir voru aftur komnir yfir, þá var dæmt aukakast á ekki neitt.
Alveg magnað líka hvernig þeir fengu að brjóta endalaust á Íslendingum án þess að neitt hafi verið dæmt.
…Og þetta skref? í lokinn??

Bætt við 21. janúar 2010 - 22:57
…já hendi hér inn til gamans frétt frá mbl.is
http://www.mbl.is/mm/frettir/forsida/2010/01/21/beittu_reglu_sem_er_ekki_til/
Það er enginn tilgangur með lífinu ….það ert þú sjálf/ur sem skapar hann