Úrslitakeppnin er að fara byrja og þá ákvað ég að fara að spá í leikina

Haukar-Víkingur/FH
Ég spái að það komi Hafnarfjarðarslagur og Haukar vinni þá FH
Spá: Haukar 2-1 FH. Hörkuspennandi leikir og Haukar vinna æsispennandi oddaleik á Ásvöllum

ÍBV-Fram
Ég spái öruggum sigri hjá Eyjamönnum, ætti ekki að vera mikið vandamál að sigra Frammara
Spá: ÍBV 2-0 Fram. ÍBV er bara með of gott lið fyrir Fram

ÍR-KA
Ég spái þremur spennandi leikjum þar sem KA kemur á óvart og vinnur ÍR í oddaleik í Reykjavík
Spá: ÍR 1-2 KA. Allir leikirnir mjög spennandi og KA vinnur oddaleikinn í framlengingu

HK-Valur
HK vinnur Val í oddaleik. Valsararnir verða mjög slakir og eiga litla möguleika gegn frískum HK mönnum
Spá: HK 2-1 Valur. HK vinna heimaleikina sína örugglega en tapa naumlega á Hlíðarenda