mikill missir á Akureyri Jæja þá er það komið - þann 31 október misstu Þórsarar - já og bara Akureyringar einn sinn besta leikmann, línumanninn Hörð Fannar Sigþórsson. Hörður - eða Höddi eins og flestir þekkja hann- fékk leyfi frá félagi sínu Þór til að hugsa sinn gang um hvað hann vildi gera í sambandi við handboltann, hugurinn leitaði mikið suður og var hann búinn að svipast mikið um.
Á hrekkjavöku, föstudaginn 31.október skrifaði Höddi svo undir samning við HK. Í gær, þriðjudag var hann svo löglega tekinn inn í liðið, spilar hann sem línumaður.
Meðan ég vil óska Akureyringum samúð mína með að hafa misst þennan frábæra handboltakappa úr bænum, og von um að hann sjái nú við sér fljótt og komi aftur, þá óska ég HK til hamingju með nýjan leikmann.