Góðan daginn góða fólk. LHM ICELAND er félag sem sér um League Handball Manager leikinn á Íslandi. Þeir hafa opnað heimasíðuna www.lhmiceland.tk og bjóða ykkur velkomin þanngað. En nú staðan þannig að okkur vantar fólk til að dæma leikmenn í Essó-deild karla og kvenna þannig að leikurinn verði ekki svokallað “Random”. Þetta er gert þannig að fólk hefur samband við okkur, sendir okkur e-mail lhm@visir.is, og segir okkur til nafns og hvaða félag hann eða hún mætir styður, og mætir á leiki hjá. Þá verður talað betur við hann eða hana og honum eða henni greint frá hvernig dæma á leikmenn, ATH STAÐFESTA VERÐUR VIÐ OKKUR HVORT ÞIÐ ÆTLIÐ Á LEIKI MEÐ DAGS FYRIRVARA, fyrir utan leiki sem verða á morgun þá er í lagi að hafa samband fyrir klukkan 13 á morgun. Ef nóg að fólki býður sig fram í þetta verkefni þá auðveldar það okkur verkin og verður leikurinn því skemmtilegri fyrr heldur en ef fáir bjóða sig fram. Gott væri, þar sem aðeins tveir leikir eru eftir í kvennadeildinni að fólk myndi hafa samband strax í kvöld eða í fyrramálið og bjóðast til að taka leiki að sér þar. Helst viljum við fá tvo á hvern leik en í lagi er ef aðeins einn getur það. Ef enginn tekur þátt í þessu verkefni verðum við í hópnum MJÖG LENGI að gefa leikmönnum tölur í leiknum og því verður hundleiðinlegt að spila hann fram á næsta tímabil. Við hjá LHM ICELAND vonumst því til að sem flestir bjóði sig fram og því fyrr því betra. ATH að aðeins tveir leikir eru eftir í deildinni hjá konunum og tveir hjá körlunum hjá öllum liðum nema KA, UMFA, HAUKUM, FRAM, HK og GRÓTTU/KR. Því er mjög gott ef þið bjóðið ykkur STRAX FRAM Í DAG!!

Með handboltakveðju
LHM ICELAND
www.lhmiceland.tk og lhm@visir.is