Já ! Í dag eru 40 ár liðin síðan Bítlaplatan Sgt. Peppers Lonely Hearts Club Band var gefin út í Bretlandi, þann 1.júní 1967.

Platan vann 4 Grammy verðlaun á sínum tíma, þar á meðal fyrir bestu plötuna. Platan er í fyrsta sæti á lista Rolling Stone yfir bestu plötur allra tíma. Einnig var hún í efsta sæti breska vinsældarlistans í 27 vikur !

Í tilefni af 40 ára afmælinu hvet ég alla til að hlusta á plötuna í dag !