Sælt veri fólkið :

Þannig er mál með vexti að ég er að fara að leggjast í prentarainnkaup og það er sama sagan í hvaða búð sem ég fer, allir sölumenn lofsækja sinn prentara eins og um hreint gull sé að ræða :)
Ég var svona að spá í að fyrir venjulega heimilisnotkun hvað þarf maður að hafa í prentaranum ef að aðalnotkunin er að prenta út ljósmyndir og þar eftir götunum ?
Hver er ásættanleg upplausn, hversu mörg blekhylki er gott að hafa og svo auðvitað hvort hann sé í lit ;)

Með fyrirfram þökk
kv. Lancelot