Mig langar að spyrja ykkur að tvennu:

<b>Hvernig merkið þið boltana ykkar?
Eruð þið hjátrúafullir út á velli?</b>

Ég merki Titleist boltana mína alltaf eins, með tveimur punktum sitt hvoru megin við tölustafina.

Ég verð að viðurkenna að ég er mjög hjátrúafullur. Ég byrja alltaf á því að hita upp með SW, fer svo í 9 járn og hita bara upp með járnum sem hafa oddatölu. Ég nota bara brotin tí þegar ég slæ teighögg á par 3 holum. Ég nota bara Titleist #1 og #3 og ég nota bara hvít tí.

Til eru mörg dæmi um þessa skemmtilegu hjátrú. Tiger spilar alltaf í rauðum bol á síðasta hring. Paul Azinger merkir alltaf með penny og snýr því alltaf eins. The list goes on, I am not crazy…<br><br>——————-
<i>make par, not war</i
——————-