David Toms á heil 5 högg á næstu menn á “Wachovia Championship” sem fer fram í Charlotte. Toms lék á -6 undir í gær (66 högg) og var í banastuði (chippaði t.d. í fyrir erni). Toms telur að lengri teighögg hans en áður hjálpi honum en hann er að leika með nýja Si3 dræverinn frá Ping og hefur lengt sig talsvert. Í gær var meðalhögglengd hans 309.5 yds. en meðalhögglengd hans yfir allt tímabilið er 286 yds. David Toms hefur unnið einn risatitil, “PGA Championship” í fyrra.
——————-