Sergio Garcia vs. Tiger Woods
Sergio Garcia sagði við fréttavef BBC í dag (23.sept.2001) að hann væri til í að keppa við Tiger Woods í holukeppni í Ryder keppninni sem hefst á föstudaginn.
Garcia gerði vallarmet á American Express mótinu á sunnudaginn og spilaði á 62 höggum, en Tiger vann mótið og var Garcia sex höggum á eftir honum

“Ég held að Tiger myndi ekki vinna mig ef ég fæ aftur átta fugla og einn örn á átján holum. Þegar ég er í slíkum ham þá á ég möguleika gegn hverjum sem er. Ég væri til í að mæta Tiger á lokadeginum, leggja hann að velli og tryggja Evrópu sigur,” sagði Garcia.

Þetta þýðir bara spennandi keppni á föstudaginn og ég hlakka til að horfa á og halda með evrópu :).
——