Íslenska karlaliðið í golfi lauk í dag fyrsta hring á heimsmeistaramóti landsliða áhugamanna í Berlín. Örn Ævar Hjartarson náði bestum árangri Íslendinganna, lék á pari, eða 72 höggum. Ólafur Már Sigurðsson og Helgi Þórisson léku báðir á 74 höggum, en Íslandsmeistarinn Björgvin Sigurbergsson lék á 77 höggum en þar sem árangur þriggja bestu telur gildir skor Björgvins ekki í dag.