Þessi misskilningur getur átt sér stað þegar menn er ekki með hugtakið massi nægilega vel skilgreint.
Annarsvegar þarftu hugtakið kyrrstöðumassi, sem er sá massi sem athugandi kyrrstæður miðað við hlutinn mælir. Hlutur með kyrrstöðumassa getur aldrei komist á ljóshraða, því til þess þarf óendanlega mikla orku. Ljós hefur ekki kyrrstöðumassa.
Hinsvegar þarftu hugtakið hreyfimassi, sem er sá massi sem athugandi á hreyfingu miðað við hlutinn mælir. Það er sá massi sem ræður víxlverkun hlutarins þyngdarsviði.
Ljóseind hefur orku og þar af leiðandi hreyfimassa (gefinn með m=E/c^2) og verður því fyrir áhrifum þyngdarsviðs.
„It is not worth an intelligent man's time to be in the majority. By definition, there are already enough people to do that.“