Ég var svona hmmm 15 ára eða eitthvað, semsagt fyrir löööngu síðan.

Það var þannig að ég var á Flúðum að versla með Ömmu og frænda mínum (vorum í sumarbústað nálægt). Veðrið var glæsilegt og heiðskírt. Við komum út af versluninni Grund og sjáum þar u.þ.b. 15 mann glápa uppí loftið. Við lítum á þetta og þar eru 3 fljúgandi furðuhlutir. Einn stór sem fór fremst og 2 litlir þar á eftir. Þetta voru ekki þessir týpísku “flying soucers” eða frisbí, þetta var með vængjum en var þó ekki flugvél. Leit frekar út eins og challanger eða eitthvað, 1 stórt þannig og 2 lítil á eftir, frekar hátt uppi en samt ekki svo hátt, þetta sást greinilega. Öll förin litu eins út, bara 2 mismunandi stærðir.

Allir gláptu á þetta án þess að segja eitt aukatekið orð, það var engin að segja neitt og það var eins og fólki fyndist þetta ekkert merkilegt þannig séð. Ég man þó eftir manni með myndavél á þrífót að mynda þetta allt saman.

Í bílnum á leið uppí bústað voru engar vangaveltur um það hvað þetta væri og í svona 8 ár gleymdi ég þessu. Svo þessum árum seinna man ég skyndilega eftir þessu og tala við frænda minn. Hann hugsar sig um í nokkrar sekúndur og segir svo “jáááá alveg rétt!”. Ég rifja þetta upp með ömmu og eftir nokkra stund byrjar hún að muna eftir þessu.

Aldrei sást neitt í blöðum um þetta eða neitt og þetta var/er allt hið undarlegasta mál :)

Ég hef aðeins lesið um UFO og geimverur og þess háttar og oft er minnst á eiginleika þeirra til að sefja vitundina. Ég trúi því nú samt tæpast og veit ekkert hvort að þetta voru geimverur eða hva
Orale vaddo!