Hann Polli átti frábært líf hann var orðinn 12 ára. Hann var gulur og smá grænn og var í stýl við páskana Hann dó í nótt. Ég er byrjaður að sakna hann strax. Enginn fugl sem flautar á móti mér þegar maður vaknar á morgnana ekki einu sinni dísarfuglinn hún Ronja og náttlega seigir kanínan ekki mikið hann Vicious. Hann var hættur að geta flogið en vonandi flýgur hann þar sem hann er núna hehe hann EEELSKAÐI poppkorn og þegar hann heyrði eitthvað fara inn í örbylgjuofninn tístaði hann eins hátt og hann gat svo hann yrði öruggur um að við heyrðum ekki alveg örugglega í honum svo hann gæti fengið smakk. Þetta er fyrsta gæludýrið mitt sem deyr og ég er á 19 árinu. Þetta er ekki sama heimilið án hans og í dag ætla ég að kaupa fallegann kassa til þess að setja hann í og svo ætla ég að grafa hann í lóðinni svo hann verði enþá samt hjá okkur.
Ég og MrBozo erum stofnandar evil dead klúbbsins við erum einnig stofnandar Bruce Campell klúbbsins.