Þegar ég var að lesa grein í Séð og Heyrt um daginn sá ég að það var fjallað um vinkonu Parisar Hilton. Er það bara mín skoðun eð er það alveg gjörsamlega fáranlegt að verða frægt fyrir að vera vinkona Parisar Hilton. Ef maður fer svo að spá í hvernig Nicole Richie varð fræg þá segja sumir Hún er fræg fyrir að vera ættleidd af tónlistarmanni. Sem er að vissu leiti satt, en hún kom ekki í sviðsljósið fyrr en Paris sagði að hún væri vinkona sín. Og fyrir hvað er Paris fræg eiginlega. Hún fékk líklega öll þessi hlutverk og alla þessa athygli fyrir að vera dóttir Hilton hjónanna. Þannig að Nicole Richie er fræg fyrir það að eiga fræga vinkonu sem er fræg fyrir það að vera fræg. Ég myndi allaveganna ekki vera stoltur ef að ég væri frægur fyrir það. What about you?