Sagt er frá því í tónlistarfréttum netveitunnar AOL að söngkonan Shakira og tónlistarmaðurinn Roger Waters, sem heimsótti Íslendinga ekki alls fyrir löngu, hafi ásamt öðrum keypt eyju í Bahamas eyjaklasanum. Eyjan telur um 600 hektara og er algjörlega í eyði. Kaupverðið er rúmur milljarður íslenskra króna.
Á eynni munu vera fimm stórar strendur og er mögulegt að koma þar fyrir litlum flugvelli. Þau Shakira og Waters munu þó ekki hafa í hyggju að vera þar ein því til stendur að reisa á eyjunni verði fjöldi lúxus-sumarhúsa og listagallerí.