Stjörnuparið Angelina Jolie og Brad Pitt eru nú að íhuga að ættleiða eitt barn í viðbót og frá Indlandi í þetta skiptið. Parið á fyrir tvö ættleidd börn, Maddox sem er frá Kambódíu og Zahara frá Eþíópíu ásamt því að eiga hina nýfæddu Shiloh saman. Samkvæmt blaðinu Globe Magazine eru Pitt og Jolie búin að leggja inn beiðni til að fá að ættleiða barn frá Indlandi en parið er statt þar á landi þessa dagana við upptökur á myndinni A Mighty Heart þar sem Jolie leikur aðalhlutverkið og að Pitt framleiðir myndina.
Brad Pitt mun víst hafa óskað eftir því að fá lítinn indverskan strák en Angelina segist ekki getað lofað honum að hún muni ekki vilja litla stelpu.