Allison Mack Þið þekkið eflaust Allison Mack sem sætu stelpuna Chloe Sullivan í þáttunum Smallville sem eru sýndir á mánudögum á rás 2,en þeir þættir fjalla um unglingsár Clark Kent's (sem seinna verður súperman) og Allison leikur besta vin hanns.

Allison fæddist 29 Júlí 1982 í Preez í Þýskalandi. Pabbi hennar Johnathan Mack er óperusöngvari en ég veit ekki hver móðir hennar er. Fyrsta hlutverk hennar var í þýskri súkkulaði auglýsingu.

Allison flutti til Californiu þegar hún var sex ára gömul, hún lék þar í auglýsingum alla æskuna sína og fyrstu hlutverk hennar í kvikmyndum voru í Police academy 6,Camp nowhere og Honey we shrunk ourselves.
En eftir það fékk hún hlutverk í þáttum sem hétu Opposite sex og fjallaði um þrjá stráka sem voru fyrstu strákarnir til að fara í svona all girl school í Bandaríkjunum. Kannski er betra að færa þetta yfir á íslensku svo að fólk færi ekki að halda að ég sé að þýða grein og misþyrma íslenskunni. Allra stelpu skóla segi ég þá. En í þeim þáttum leikur einnig Kyle Howars sem lék í þáttunum Grosse point sem voru sýndir á stöð tvö, og þar lék hann Dave the stand-in.

Stuttu eftir fékk Allison hlutverkið sem hún er lang þekktust fyrir sem Chloe Sullivan í Smallville. En Smallville er tekið upp í Vancouver í Kanada og þurfti Allison að flytja þangað.

Myndir sem hún hefur leikið í.

“Smallville” (2001) TV Series …. Chloe Sullivan
My Horrible Year! (2001) (TV) …. Nik Faulkner
“Opposite Sex” (2000) TV Series …. Kate
“Hiller and Diller” (1997) TV Series …. Brooke
Honey, We Shrunk Ourselves (1997) (V) …. Jenny Szalinski
Unlikely Angel (1996) (TV) …. Sarah Bartilson
Care and Handling of Roses, The (1996) (TV) …. Bess Townsend
Dad, the Angel & Me (1995) (TV) …. Andrea
Stolen Memories: Secrets From the Rose Garden (1995) (TV) …. Katie
… aka Forbidden Memories (1995) (TV)
No Dessert Dad, Til You Mow the Lawn (1994) …. Monica Cochran
Camp Nowhere (1994) …. Heather
Night Eyes Three (1993) …. Natalie
Mother's Revenge, A (1993) (TV) …. Wendy Sanders
… aka Desperate Justice (1993) (TV)
Message from Holly, A (1992) (TV) …. Ida
Private Matter, A (1992) (TV) …. Terri Finkbine
Living a Lie (1991) (TV)
Perfect Bride, The (1991) (TV) …. Little Stephanie
Switched at Birth (1991) (TV) …. Normia Twigg, Age 6
I Know My First Name Is Steven (1989) (TV) …. Nettie
… aka Missing Years, The (1989) (TV)
Police Academy 6: City Under Siege (1989) …. Little Girl


Staðreindir um Allison

-Allison er með tvö tattoo
-Kærasti hennar,Peter er í hljómsveitinni Leisure og var nýlega að flytja til Vancouver til hennar.
-Allison og Peter eiga German sheppard hvolp sem heitir Phantom.
-Allison las marg oft fyrir hlutverk í endurgerð af myndinni Flipper,1996
-Þegar Allison var 12 ára var hún rosalega hrifin af hobbitanum Elijah Wood.
-Audrey Hepburn er role modelið hennar.

Ég fékk staðreindirnar á síðunni www.Allison-Mack.com en það er fan síða sem að allir ættu að kíkja á, það eru mjög margar flottar myndir af henni þar. Svo getið þið líka kíkt á www.allisonmack.com sem er official síðan hennar.

Ég valdi þessa leikkonu ekki bara út af því að mér finnst hún mjög góð leikkona en ég held að það vita ekki allir mikið um hana, og ekki allir vita hvað hún heitir þótt að hún sé mjög kunnulegt andlit, fyrir þá sem horfa á stöð2.

Baboomio