Gerir henni lífið leitt :( Nú er það þannig að Britney Spears hefur krafist nálgunarbanns á 41.árs gamlan Japana, sem söngkonan segir að hafi elst sig um allt frá því í September. Lögfræðingar Spears segja að Masahiko Shizawa(japanski maðurinn) hafi einnig reynt að hafa samband við hana við heimili söngkonunnar í Los Angeles, við heimili hennar utan Kaliforníu og við heimili foreldra hennar.
Shizawa er sagður hafa sent henni ljósmyndir af sjálfum sér og miða þar sem meðal annars hefur staðið: “Ég elti þig”. Lögmenn Spears segja að Shizawa hafi mætt fyrir utan heimili söngkonunnar og neitað að halda á brott þegar honum var skipað að yfirgefa svæðið, að sögn ananova.com.

Lögmenn hennar hafa krafist að Shizawa haldi sig 30 km frá heimili söngkonunnar og að hann hætti að gera tilraunir að hafa samband við hana.

Kv. Halla