Sögufrægir Ökumenn – Juan Manuel Fangio 17. Júlí 1995 ríkti mikil sorg í hjörtum f1 unnenda. Juan Manuel Fangio var látinn. Jafnt lifandi sem dáinn er hann goðsögn og er á stall með öðrum snillingum eins og Senna, Prost, Ascari, Lauda, Andretti og fleiri. Fangio fæddist 24. Júní 1911 í Balcardi, Argentínu. Eftir að hafa lokið herskyldu opnaði hann bifreiðaverkstæði og hóf þá feril sinn í kappakstri. Hann keppti í Formúlu 1 frá árinu 1950-1957. Fangio er óumdeilanlega einn sigursælasti f1 ökumaður sem uppi hefur verið. Á kappakstursferli sínum vann hann 5 heimsmeistaratitla og lenti tvisvar í öðru sæti. Aðeins einn maður hefur leikið það eftir en það er Michael Schumacher. Vinningshlutfall þessa manns er ótrúlegt en hann tók þátt í 51 keppni og vann 24. Þess má geta að auk 24 sigra lenti hann 11 sinnum í öðru eða þriðja sæti. Hreint ótrúlegur árangur.


Árið 1952 var örlagaríkt fyrir Fangio. Á Monza hálsbrotnaði hann og var nær dauða en lífi. Hann keppti ekki meira þetta tímabil. 1953 var hann hinsvegar mættur aftur til keppni og í þetta skiptið ók hann fyrir Maserati. Aðeins tókst honum að sigra einu sinni og það á Monza. Endaði hann það tímabil í öðru sæti. Næstu fjögur tímabil sýndi hann þó og sannaði að hann var einn besti ökumaður síns tíma enda voru yfirburðir hans með ólíkindum enda sigraði hann í sautján keppnum með þrem mismunandi keppnisliðum. Árið 1958 var hans síðasta keppnistímabil sem formúlu 1 ökumaður og settist hann í helgan stein eftir tvær umferðir eftir að yfirburðir hans voru horfnir. Á þessum tímum voru bílarnir ekki eins fullkomnir og í dag og því má segja að Fangio hafi verið ökumaður af guðs náð.


Nafn: Juan Manuel Fangio
Fjöldi keppna: 51
Fjöldi sigra: 24
Fjöldi ráspóla: 28
Verðlaunasæti: 35
Heimsmeistaratitlar: 5


Vona ég að þessi grein hafi frætt ykkur aðeins um þennan einstaka ökumann.

Heimild:
Bókin Formúla 1 - Saga formúlu 1 kappakstursins