Mika Hakkinen ók hraðast á föstudagsæfingunni. Besti tími hans var 1.40.262 og var hann 0.014 frá tíma Michales Schumacher sem var með annan besta tímann. DC var síðan í þriðja sæti 0.236 frá tíma Hakkinen og Barrichello var í fjórða sæti 0.379 frá tíma DC.

Mikill hiti og raki var á meðan á æfingunni stóð og var brautin 40°c heit sem var ein ástæða þess að fyrstu tímarnir voru frekar lélegir. Michael Schumacher virtist vera í erfiðleikum að finna sig á brautinni og lenti m.a. örlítið útaf í einum hringnum. En það voru fleiri sem áttu í erfiðleikum og lenti Hakkinen t.d. í því að snúa bílnum og lenda utan brautar. Það má því búast við skemmtilegri keppni um helgina með óvæntum uppákomum.